Mikilvægt að halda rétt á spilunum 11. júní 2005 00:01
Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ, segir að niðurfelling skulda hjá fátækustu ríkjum heims hafi gífurleg áhrif. "Þessi lönd bera mikinn vaxtakostnað og þar af leiðandi hafa tekjur þessara landa fyrst og fremst farið í fjármagnskostnað. Þau hafa ekki náð neinum möguleika á hagvexti, meðal annars vegna þess, en auðvitað geta verið fleiri þættir sem þar hafa áhrif," segir Tryggvi. Hann segir mikilvægt að þessum löndum sé hjálpað að komast af stað eftir breytingarnar. "Það er betur heima setið en af stað farið ef ekki er haldið rétt á spilunum. Það þarf auðvitað að sjá hvers konar stjórnarhættir eru í þessum löndum og svo framvegis. Langtímaáhrif af þessu gætu reyndar verið þau að löndin fengju ekki lán seinna meir, þannig að það þarf að huga að mörgum þáttum ef þetta verður að veruleika," segir Tryggvi. Ísland á aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og við niðurfellingu skuldanna minnkar virði sjóðsins en Tryggvi segir það vera mjög óveruleg áhrif fyrir Ísland enda hafi aðstoð Íslendinga við fátækustu ríki heims einkum verið bundin við matvælaaðstoð og annað í þá veru. Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, fagnar ákvörðun um niðurfellingu skulda. Hann segir að framkvæmdastjórum þróunarstofnana Norðurlandanna hafi fyrir nokkru verið kynntar hugmyndir um alþjóðlega lánastofnun sem ríki heims myndu eiga aðild að, en hann sé ekki hrifinn af slíkum hugmyndum. "Ég tel að með slíku sé verið að færa vandann til þeirra ríkisstjórna sem taka við í framtíðinni. Eina leiðin til að afnema fátækt er að auka hjálpar- og uppbyggingarstarf með beinun fjárframlögum og það er sú leið sem ég vil fara," segir Sighvatur.
Fréttir Innlent Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira