Gögn ríkisendurskoðunar stangast á 10. júní 2005 00:01
Á fundi fjárlaganefndar með Sigurði Þórðarsyni ríkisendurskoðanda og fulltrúum Framkvæmdanefndar um einkavæðingu á miðvikudag taldi ríkisendurskoðun enga ástæðu til þess að rannsaka hugsanlegt vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar í söluferli ríkisbankanna. Í samantekt Ríkisendurskoðunar 7. júní segir að engar spurningar hafi vaknað af hálfu Ríkisendurskoðunar enda engin gögn um að hagsmunir hans rækjust eða kynnu að rekast á hagsmuni seljanda í ferlinu. Í minnisblaði Ríkisendurskoðanda, einnig dagsettu 7. júní síðastliðinn, koma hins vegar fram upplýsingar sem embætti hans hefur nú ákveðið að taka til sérstakrar athugunar. Þar er meðal annars bent á að ónákvæmt sé að halda því fram að félagið Hesteyri, sem Skinney Þinganes og Kaupfélag Skagfirðinga notuðu til kaupa á stórum hlut í Keri, hafi á þessum tíma verið einvörðungu í eigu kaupfélagsins. Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar sat fundinn í fjárlaganefnd á miðvikudag. Hann bendir á að Hesteyri hafi fyrst átt aðild að S-hópnum í gegnum Ker og síðan í gegnum eignarhald sitt á hlutabréfum í VÍS. "Fyrir liggur að Hesteyri hagnaðist um 700 milljónir á því þriggja mánaða tímabili sem félagið átti hlutabréf í Keri. Þar sem forsætisráðherra gegndi starfi varaformanns ráðherranefndar um einkavæðingu á þessu tímabili, koma ákvæði stjórnsýslulaga um vanhæfi til skoðunar," segir Lúðvík. Forystumenn stjórnarandstöðunnar ræddu bankasölumálið á fundi í gær, en þann fund sóttu meðal annars fulltrúar hennar í fjárlaganefnd. "Ríkisendurskoðun er í vaxandi mæli að endurskoða eigin verk. Hún hefur endurtekið komið að málinu á fyrri stigum, mætt fyrir nefndir og talið málin upplýst," segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna. Hann bendir á að unnt sé að kjósa sérstakar rannsóknarnefndir á vegum Alþingis ef þurfa þykir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar bendir á að hægt sé að leita til sérfræðinga Háskóla Íslands eða annarra lögfróðra þannig að Ríkisendurskoðun sé ekki sett í þá stöðu að rannsaka eigin verk.. Ekki náðist í Sigurð Þórðarson ríkisendurskoðanda í gær. Steingrímur Ólafsson upplýsingafulltrúi Halldórs Ásgrímssonar segir að forsætisráðherra ætli ekki að tjá sig um málið fyrr en að lokinni rannsókn Ríkisendurskoðunar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira