Færri í nám en vilja 10. júní 2005 00:01
Um sjötíu prósent fleiri óska þess að hefja nám við Háskólann í Reykjavík nú en óskuðu eftir skólavist í fyrra í skólana tvo, sem hafa sameinast í Háskólanum í Reykjavík, það er HR og Tækniháskóla Íslands. Alls hafa 1.700 sótt um nú og munu 950 þeirra komast að. "Í fyrsta lagi kallar atvinnulífið eftir fleira háskólamenntuðu fólki, bæði í hefðbundnum greinum og á nýjum sviðum. Það er fjöldi tækifæra fyrir fólk með háskólamenntun. Í öðru lagi eykst eftirspurn með auknu framboði á háskólanámi, nýjum háskólum, nýjum námsbrautum, meiri fjölbreytni í meistaranámi og nýjum tækifærum til að stunda háskólanám með vinnu," segir Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, um ástæður þess hversu margir sækja um nú. Boðið verður upp á tíu nýjar námsbrautir á næsta skólaári og er aðsóknin í þær mikil. Sem dæmi um það hafa 750 sótt um í nýja tækni- og verkfræðideild skólans. "Í grófum dráttum hefur fjöldi umsókna tvöfaldast á milli ára. Um fjögur hundruð sóttu um í Bifröst og munum við taka inn um 135 nemendur," segir Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst. Runólfur segir að Viðskiptaháskólinn auki námsframboð og eins sé mikil sókn í meistaranámið í skólanum. "Ég held að við séum að ná í gegn með okkar sérstöðu. Við erum lítill skóli með fáa nemendur sem við veitum góða þjónustu og mikil gæði í kennslu. Við erum ekki í svokölluðu massanámi, þar sem menn hrúga miklu fólki inn í fyrirlestrarsali og troða hlutunum ofan í það, heldur er námið mestmegnis byggt á verkefnum og umræðum. Vörumerkið Bifröst er að ná í gegn hjá fólki," segir Runólfur.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira