Innlent

Tveir fá styrk til listrannsókna

Rannsóknarsjóður Listasafns Háskóla Íslands úthlutaði í gær tveimur styrkjum, báðum að upphæð kr. 400.000. Hrafnhildur Schram listfræðingur fékk annan styrkinn vegna vinnslu bókar um listakonuna Júlíönu Sveinsdóttur. Hinn styrkinn fékk Viktor Smári Sæmundsson forvörður til að stunda rannsóknir á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar. Þetta er fimmta úthlutun sjóðsins, sem var stofnaður af Sverri Sigurðssyni árið 1999, og fer úthlutunin jafnan fram á afmælisdegi Sverris þann 10. júní.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×