Íhuga að stofna nýjan barnaskóla 10. júní 2005 00:01
Óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga ásamt foreldrum að setja á fót nýjan barnaskóla þar sem séra Hjalti Þorkelsson yrði skólastjóri. Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér. Fjölmennur fundur kennara, foreldra, og stjórnenda Landakotskóla var haldinn í gærkvöldi, en hann var lokaður fjölmiðlum. Kennarar sendu frá sér yfirlýsingu að fundinum loknum þar sem þess var krafist að stjórn skólans segði af sér þar sem hún vildi ekki veita skólastjóra það vald sem honum bæri að hafa samkvæmt grunnskólalögum. Meira en helmingur kennara við Landakotsskóla, eða 8 af 15, ritaði undir yfirlýsinguna. Gríðarleg ólga hefur ríkt í skólanum undanfarnar vikur eftir að séra Hjalti Þorkelsson skólastjóri sagði starfi sínu lausu í kjölfar þess að Bessí Jóhannsdóttur aðstoðarskólastjóra var vikið fyrirvaralaust úr starfi. Á fundinum í gær var lýst yfir áhyggjum af ástandinu og sögðu foreldrar sem fréttastofa Bylgjunnar hefur rætt við að fátt hefði verið um svör hjá stjórn skólans þegar hún hefði verið spurð um hugmyndir til lausnar deilunni. Samkvæmt heimildum fréttastofu íhugar hópur óánægðra kennara og foreldra við skólann að setja á fót nýjan barnaskóla og er verið að setja saman undirbúningshóp til að vinna að verkefninu. Hópurinn sættir sig ekki við stöðuna eins og hún er nú í Landakotsskóla og hefur fréttastofan enn fremur heimildir fyrir því að að óbreyttu ætli stór hópur nemenda að hætta í skólanum. Svo mikil óánægja er með aðgerðir stjórnar skólans að undanförnu að kennarar og foreldrar telja að með þeim sé verið að eyðileggja skólastarfið. Mikill einhugur er sagður innan raða foreldra með að stofna nýjan skóla ef núverandi stjórn Landakotsskóla lýsir sig ekki reiðubúna að gefa eftir í þeim tilgangi að reyna að leysa deiluna á farsælan hátt.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira