Kvennahlaupið á yfir 90 stöðum 9. júní 2005 00:01
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á yfir 90 stöðum hérlendis næsta laugardag, 11. maí. Íslenskar konur á erlendri grund taka einnig þátt og í ár verða skipulögð hlaup m.a. í Álaborg, Brussel, Walvis Bay í Namibíu og Maryland í Bandaríkjunum. Íslenskar konur í Eþíópíu tóku forskot á sæluna um síðustu helgi og hlupu fyrstar Kvennahlaup ÍSÍ í höfuðborginni Addis Ababa (sjá meðfylgjandi mynd). Kvennahlaup ÍSÍ er lang fjölmennasti og útbreiddasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi en árlega taka um 18.000 konur á öllum aldri þátt. Samkvæmt nýlegri könnun Gallup hafa hvorki meira né minna en 54,4% kvenna á aldrinum 16-75 ára tekið þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ. Þátttökugjaldið er 1.000 kr og er innifalið í því bolur og verðlaunapeningur. ÍSÍ sér um heildarframkvæmd hlaupsins en kröftugar konur og karlar um land allt sjá um framkvæmd viðburðarins á sínu svæði. Meginmarkmið Kvennahlaupsins er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar. Allar konur geta tekið þátt í hlaupinu á sínum forsendum, óháð aldri og líkamlegri getu. Yfirskrift hlaupsins í ár er „Áfram stelpur!“ Tilgangurinn er að vekja athygli á hversu mikilvægt er fyrir konur, og þá ekki síst ungar stúlkur, að eiga sér heilbrigðar og sterkar fyrirmyndir. Það styrkir sjálfsmynd þeirra og hvetur þær til dáða. Karlarnir eru ekki síður mikilvægur hluti af hlaupinu og sjá m.a. um framkvæmd, verðlaunaafhendingar og hvatningu á hliðarlínunni. Á síðasta ári sá t.d. Sparisjóðsstjórinn á Grenivík um framkvæmd kvennahlaupsins á staðnum. Nánari upplýsingar um alla hlaupastaði er að finna á www.sjova.is Í Garðabæ verður hlaupið frá Garðatorgi og hefst hlaupið kl. 14. Þátttakendur geta valið um að fara 2, 5, 7 eða 9 km. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, og Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, flytja hvatningarávörp fyrir hlaupið og eftir hlaup mun m.a. Heiða Idol-stjarna spila vel valda slagara. Hlaupið hefst kl. 11 í Mosfellsbæ og á Akureyri.
Innlent Menning Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Fleiri fréttir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein