Lífi dansks ráðherra ógnað 8. júní 2005 00:01
Ráðherra innflytjendamála í Danmörku segist vera bæði slegin og reið eftir að kveikt var í bíl hennar og íbúðarhúsi snemma í morgun. Óþekkt samtök segjast vera að refsa Dönum fyrir kynþáttahatur. Danska Ritsá-fréttastofan segir að áður óþekktur hópur mótmælenda hafi lýst verknaðinum á hendur sér og sagt íkveikjuna vera til þess að mótmæla kynþáttahatri danskra stjórnvalda. Rikke Hvilshöj, sem er þrjátíu og fimm ára gömul, tók við embætti ráðherra innflytjendamála í febrúar síðastliðnum. Hún var, ásamt fjölskyldu sinni, sofandi þegar kveikt var í bílnum. Eldurinn barst í íbúðarhús þeirra en var þá uppgötvaður og slökkviliðið kom snarlega á vettvang. Bíllinn er ónýtur og íbúðarhúsið talsvert skemmt en fjölskylduna sakaði ekki. Hvilshöj segir að hún sé bæði slegin og reið yfir þessum atburði en að hann muni ekki hafa nein áhrif á stefnu ríkisstjórnarinnar; hún beygi sig ekki fyrir hryðjuverkamönnum. Ráðherrann fór til vinnu sinnar í dag eins og ekkert hefði í skorist. Danska ríkisstjórnin vann stórsigur í þingkosningum árið 2001 með loforðum um að herða mjög reglur um innflytjendur. Hún var svo endurkjörin í febrúar. Síðan 2001 hefur innflytjendum til Danmerkur fækkað um heil áttatíu prósent. Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra fordæmdi íkveikjuna, sem og leiðtogar stjórnarandstöðunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira