Innlent

Rafrænt vegabréf skilyrði

Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna sendi í dag út tilkynningu þar sem minnt er á að enginn ferðamaður komist inn í landið án vegabréfsáritunar nema hann framvísi rafrænu vegabréfi frá og með 26. júní nk. Undanfarið hafa ferðamenn sem ekki hafa haft slíkt vegabréf fengið undanþágu í eitt skipti en því verður hætt frá og með nefndri dagsetningu eftir rúmar tvær vikur. Flugfélög sem flytja farþega án tilskilinna ferðapappíra mega eiga von á sekt upp á rúmar 200 þúsund krónur. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×