Innlent

Lyfjakostnaður aukist um þriðjung

Íslendingar eyða um 200 þúsund krónum á mann í heilbrigðismál á ári hverju. Aðeins fjögur lönd í heiminum eyða meiru en útgjöld til heilbrigðismála hafa aukist í öllum OECD-löndunum. Lyfjakostnaður hefur að meðaltali aukist um rúman þriðjung á fimm árum. Þessir nýju útreikningar OECD miðast við árin 1998-2003. Þar kemur fram að kostnaður við lyf hefur aukist í öllum aðildarlöndum og er nú að meðaltali um 18% af kostnaði við heilbrigðiskerfið. Ísland er nokkru undir því meðaltali með um 14,5%. Hæstur var lyfjakostnaðurinn á mann í Bandaríkjunum, um 45.000 krónur. Hann var hins vegar lægstur í Mexíkó og Tyrklandi, um sjö þúsund krónur. Ísland er í fimmta sæti á þeim lista en hér eru samanlögð opinber og einkaútgjöld til lyfja tæpar þrjátíu þúsund krónur á mann á ári. Ríkið greiðir að meðaltali um 60% af lyfjakostnaði en það ber hins vegar þrjá fjórðu kostnaðar við heilbrigðiskerfið allt. Ísland er einnig ofarlega á lista yfir þau lönd sem eyða hæstu hlutfalli þjóðartekna í heilbrigðiskerfið. Hér fara um 10,5% þjóðartekna í þennan málaflokk en aðeins Bandaríkjamenn, Svisslendingar og Þjóðverjar eyða hærra hlutfalli í heilbrigðiskerfið. Suður-Kórea eyðir minnstu, um 5,5%, en meðaltalið í öllum löndunum er 8,6%. Ísland er einnig í fimmta sæti á listanum yfir þau lönd sem eyða mestu í krónum talið í heilbrigðismál. Hér eru það um 200 þúsund krónur á mann en í Bandaríkjunum, sem tróna langefst á toppi þess lista, er um 350 þúsund krónum eytt á hvern íbúa. Það skal þó tekið fram að ríkið greiðir innan við helming af því. Sem fyrr eru það Tyrkir og Mexíkóar sem minnstu eyða, rúmum þrjátíu þúsund krónum á mann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×