Trúnaðarbrestur í Landakotsskóla 6. júní 2005 00:01 "
Ég hafði ekki áhuga á því að vinna áfram í Landakotsskóla í nýjum aðstæðum, það varð breyting á rekstrarforminu, ný stjórn tók við. Ég kærði mig ekki um að vinna áfram með þessari nýju stjórn," segir séra Hjalti Þorkelsson fráfarandi skólastjóri Landakotsskóla sem sagði starfi sínu lausu 3. júní síðastliðinn. Í maí sagði Gunnar Örn Ólafsson formaður rekstrarfélags skólans Bessí Jónsdóttur aðstoðarskólastjóra upp störfum. Bessí leitar nú lagalegs réttar síns því hún telur að með uppsögninni hafi verið brotið á sér bæði lagalega og siðferðislega. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins undi Hjalti uppsögn Bessíar illa og óskaði eftir því í kjölfarið að fá óskorað umboð til að sjá um starfsmannamál í skólanum. Ósk Hjalta um umboðið var hafnað af Gunnari Erni í byrjun mánaðarins. Í gærdag fóru fram fundir í Landakotsskóla vegna breytinganna í skólanum. Irena Kojic formaður kennararáðs Landakotsskóla segir að á fundum dagsins hafi skólayfirvöld ákveðið einhuga að halda áfram því góða starfi sem unnið væri í skólanum. Hún sagði undirbúning fyrir næsta skólaár vera hafinn. Irena sagði kennararáð hafa umboð til að ráða nýjan skólastjóra og kennara. Foreldrar barna í Landakotsskóla efndu til fundar í Reykjavíkurakademíunni síðdegis í gær. Um 90 manns mættu á fundinn. Séra Hjalti tók til máls í byrjun fundar og lýsti þar ástæðum ákvörðunar sinnar. Á fundinum var samin ályktun þar sem því var lýst yfir að foreldrar barna við skólann hefðu þungar áhyggjur af því ófremdarástandi sem skapast hefði í skólanum síðustu vikurnar. Skorað var á stjórn Landakotsskóla að ráða Hjalti á ný sem skólastjóra og að frumforsenda fyrir því væri að skólastjórn veitti Hjalta fullt og óskorað umboð til að fara með starfsmannamál. Að lokum var farið fram á það að skólastjórn héldi fund með foreldrum barna við Landakotsskóla. Áskorunin var samþykkt einróma af viðstöddum.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira