Innlent

Sunny Jane landaði ekki

Sjóræningjaskipið Sunny Jane fékk ekki að landa illa fengnum afla í Hollandi í gær. Landhelgisgæslan hafði fyrir helgi spurnir af skipinu og því að ólöglegum afla hefði verið umskipað yfir í það en Sunny Jane er flutningaskip sem siglir undir belískum fána. RÚV greindi frá þessu í kvöldfréttum í gær. Að sögn Kristjáns Þ. Jónssonar yfirmanns gæslumála hjá Landhelgisgæslunni er ekki enn vitað hvort eða hvar skipið reynir að landa næst en fylgst verður með ferðum þess á næstu dögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×