Innlent

Ræða stofnun fríkirkju í Garðabæ

Fjöldamörg sóknarbörn í Garðasókn eru verulega óánægð með að aðalsafnaðarfundur hafi ekki verið haldinn í maí, en í lögum um starfshætti Þjóðkirkjunnar segir að þá skuli "að jafnaði halda fyrir maílok ár hvert". Hátt í fjögur hundruð sóknarbörn hafa skrifað undir áskorun um að fundurinn verið haldinn sem fyrst og hafa sóknarbörn jafnvel rætt um að stofna fríkirkjusöfnuð í Garðabæ. Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar lagði til fyrr á árinu að presturinn yrði fluttur til í starfi og áfrýjaði hann þeim úrskurði fyrir mánuði síðan. Taldi nefndin að hann hefði gerst brotlegur í starfi. Stuðningsmenn prestsins telja hins vegar að verið sé að bola farsælum presti úr starfi. Framkvæmdanefnd sóknarnefndarinnar ákvað að höfðu samráði við Biskupsstofu að fresta fundinum, þrátt fyrir lagaákvæðið, þangað til úrskurður áfrýjunarnefndarinnar lægi fyrir, en hún taldi frestunina ekki ólöglega vegna ástandsins í sókninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×