Innlent

Orkuveitan í baðrekstur

Orkuveita Reykjavíkur vinnur að hönnun gistiaðstöðu og baðsvæðis í landi fyrirtækisins á Nesjavöllum. Nýta á náttúrulegt afrennsli frá jarðhitasvæðinu til baðsvæðisins sem svipar til þess rekstrar sem Bláa lónið er með í Svartsengi á Reykjanesi. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að auglýst hafi verið eftir samstarfsaðilum fyrir um ári síðan og fyrirtækið Saga heilsa og spa ehf. hafi orðið fyrir valinu. Nú sé unnið að því að þróa og hanna samstarfið. Hann segir að ekki sé gert ráð fyrir álíka stóru baðsvæði og í Bláa lóninu. "Nei, ég held að það verði ekki jafn stórt en það er unnið að því að þróa þetta samstarf hér innan Orkuveitunnar og þegar þeirri vinnu er lokið verður tilkynnt þar um," segir Guðmundur. Hann segir hugmyndina byggjast á svipuðum forsendum og samstarf Orkuveitunnar í nýrri frístundabyggð við Úlfljótsvatn en þá leggur Orkuveitan til landsvæði og fær aðra aðila sem séu sérfróðir á því sviði sem við á að hverju sinni til að þróa verkefnið áfram. Þannig er staðið að verki með Klasa ehf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, í landinu við Úlfljótsvatn. Guðmundur Björnsson, læknir og framkvæmdastjóri Saga heilsa og spa ehf., segir að nú sé unnið að gerð viðskiptaáætlana fyrir heilsutengda ferðaþjónustu á Nesjavallasvæðinu. Hann segir þó að málið sé enn á frumstigi því fyrst þurfi að gera markaðsrannsóknir og kanna arðsemi slíkrar fjárfestingar og því sé ekki hægt á þessu stigi að slá því algjörlega föstu að af framkvæmdunum verði. Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, segist út af fyrir sig fagna því að keppt sé við fyrirtæki sitt, það sé eðlilegt að reynt sé að byggja á góðum árangri annarra. Hins vegar telur Grímur óeðlilegt að opinbert fyrirtæki skuli standa í slíkum samkeppnisrekstri. Heppilegast væri ef Orkuveita Reykjavíkur tæki sem minnstan þátt í verkefninu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×