Innlent

Kynna ástand þorskstofns í dag

Ástand þorsksins og aflahorfur fyrir næsta fiskveiðiár verða kynnt á blaðamannafundi Hafrannsóknarstofnunar klukkan tvö í dag. Þar verður gerð grein fyrir skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um nytjastofna sjávar árið 2004 og 2005. Nú liggja fyrir endanlegar niðurstöður úr togararalli í lok apríl en bráðabirgðaniðurstöður sýndu mjög lélega árganga þorskstofnsins og stórlækkaða stofnvísitölu. Í sjómannadagsræðu sinni í gær kallaði sjávarútvegsráðherra eftir opinskárri umræðu um ástand þorskstofnsins. Ekki hefði tekist að stækka stofninn eins og stefnt hefði verið að.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×