Innlent

RÚV keypti þætti án fjárheimilda

Ríkissjónvarpið á tvær íslenskar þáttaraðir sem það getur ekki sýnt, meðal annars vegna þess að ekki hefur fengist heimild til kaupa á efninu. Anna Th. Rögnvaldsdóttir, handritshöfundur og leikstjóri annarrar þáttaraðarinnar, sagði að upphaflega hefði staðið til að fyrsti þátturinn af þremur yrði sýndur sunnudaginn 6. febrúar, en nú lægi fyrir að þeir yrðu ekki sýndir fyrr en eftir áramót. "Þetta var skýrt þannig fyrir okkur að innlend dagskrárdeild hefði ekki efni á bókfæra kaupverðið fyrr en á næsta fjárhagsári." Rúnar Gunnarsson, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, neitaði í samtali við Fréttablaðið að ætlunin hafi verið að sýna þættina í febrúarbyrjun, þótt svo kunni að hafa verið nefnt í upphafi. Þáttaraðirnar eru Kallakaffi og Allir litir hafsins eru kaldir. Rúnar sagði ekki heppilegt að sýna tvo innlenda þætti á sama tíma og það væri meðal annars ástæða þess að sýningar væru óhafnar. Allir litir hafsins eru kaldir verða sýndir eftir áramót þegar sýningum á Kallakaffi verður lokið. "Það er góð þjónusta við áhorfendur að sýna ekki tvo íslenska sjónvarpsþætti á sama tíma, sagði Rúnar. "Vetrardagskráin skiptist á tvö bókhaldsár, fyrir og eftir áramót, og við hugsum um veturinn sem heild en ekki bókhaldsárið," sagði Rúnar en vildi ekki staðfesta að bókhaldið ráði að þætirnir hafi ekki verið sýndir og ekki heldur að ekki hefði fengist fjárheimild til kaupa á öllum þáttunum. Ákveðið hefur verið að Kallakaffi verði sýnt í haust og Allir litir hafsins eru kaldir eftir áramót. Alls kostaði framleiðsla þáttanna 120 milljónir króna og Sjónvarpið hefur greitt sinn hlut að fullu. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hve há upphæðin var, en hún mun vera á þriðja tug milljóna. Sá kostnaður verður ekki gjaldfærður í bókhaldi RÚV fyrr en eftir áramót. Samkvæmt bókhaldskerfi stofnunarinnar er kostnaður vegna dagskrárgerðar ekki gjaldfærður fyrr en efnið er sýnt. Samkvæmt heimildum er treyst á að fjárheimildir fáist áður en allt efnið verður sýnt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×