RÚV keypti þætti án fjárheimilda 13. október 2005 19:18
Ríkissjónvarpið á tvær íslenskar þáttaraðir sem það getur ekki sýnt, meðal annars vegna þess að ekki hefur fengist heimild til kaupa á efninu. Anna Th. Rögnvaldsdóttir, handritshöfundur og leikstjóri annarrar þáttaraðarinnar, sagði að upphaflega hefði staðið til að fyrsti þátturinn af þremur yrði sýndur sunnudaginn 6. febrúar, en nú lægi fyrir að þeir yrðu ekki sýndir fyrr en eftir áramót. "Þetta var skýrt þannig fyrir okkur að innlend dagskrárdeild hefði ekki efni á bókfæra kaupverðið fyrr en á næsta fjárhagsári." Rúnar Gunnarsson, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, neitaði í samtali við Fréttablaðið að ætlunin hafi verið að sýna þættina í febrúarbyrjun, þótt svo kunni að hafa verið nefnt í upphafi. Þáttaraðirnar eru Kallakaffi og Allir litir hafsins eru kaldir. Rúnar sagði ekki heppilegt að sýna tvo innlenda þætti á sama tíma og það væri meðal annars ástæða þess að sýningar væru óhafnar. Allir litir hafsins eru kaldir verða sýndir eftir áramót þegar sýningum á Kallakaffi verður lokið. "Það er góð þjónusta við áhorfendur að sýna ekki tvo íslenska sjónvarpsþætti á sama tíma, sagði Rúnar. "Vetrardagskráin skiptist á tvö bókhaldsár, fyrir og eftir áramót, og við hugsum um veturinn sem heild en ekki bókhaldsárið," sagði Rúnar en vildi ekki staðfesta að bókhaldið ráði að þætirnir hafi ekki verið sýndir og ekki heldur að ekki hefði fengist fjárheimild til kaupa á öllum þáttunum. Ákveðið hefur verið að Kallakaffi verði sýnt í haust og Allir litir hafsins eru kaldir eftir áramót. Alls kostaði framleiðsla þáttanna 120 milljónir króna og Sjónvarpið hefur greitt sinn hlut að fullu. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hve há upphæðin var, en hún mun vera á þriðja tug milljóna. Sá kostnaður verður ekki gjaldfærður í bókhaldi RÚV fyrr en eftir áramót. Samkvæmt bókhaldskerfi stofnunarinnar er kostnaður vegna dagskrárgerðar ekki gjaldfærður fyrr en efnið er sýnt. Samkvæmt heimildum er treyst á að fjárheimildir fáist áður en allt efnið verður sýnt.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira