Innlent

Íhuga að segja upp störfum

"Þessu máli er lokið og ef eitthvað hefur verið um það rætt innan okkar raða gef ég ekkert upp um það," segir Sverrir Björn Björnsson, varaformaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Mikil ólga er meðal starfsmanna hjá slökkviliði Akureyrar eftir að einn reyndasti og vinsælasti starfsmaður stöðvarinnar var látinn taka pokann sinn vegna deilna við slökkviliðsstjórann. Hefur komið til tals að starfsmennirnir segi upp allir sem einn í mótmælaskyni. Málið er afar viðkvæmt enda um einn reyndasta slökkviliðsmann á landinu að ræða og átti hann meðal annars sæti í stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, LSS, um hríð. Í þeirri sömu stjórn er einmitt slökkviliðsstjóri Akureyrar, Erling Þór Júlínusson, en sá hefur oftar en einu sinni lent upp á kant við undirmenn sína og þurfti í þessu tilviki bæjarstjóri Akureyrar og bæjarráð allt að skerast tvisvar sinnum í leikinn. Í fyrra tilfellinu náðist sátt milli mannanna sem entist þó aðeins tímabundið og varð niðurstaðan sú að slökkvistjórinn hafði sitt fram og gerður var starfslokasamingur við undirmanninn. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur slökkvistjórinn, sem talsverð áhrif hefur, komið því þannig fyrir að litlar líkur eru á því að maðurinn sem um ræðir og hefur gífurlega reynslu af starfi slökkviliðsmanns fái nokkurn tíma slíkt starf aftur hér á landi. Fyrir hönd Landssambandsins vildi Sverrir Björn Björnsson, varaformaður, hvorki tjá sig um hvers vegna virtur félagsmaður væri gerður útlægur með þessum hætti né hafði skoðun á því að ólgan væri svo mikil meðal annarra starfsmanna slökkviliðsins á Akureyri að þeir íhuguðu í fyllstu alvöru uppsagnir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×