Íhuga að segja upp störfum 13. október 2005 19:18 "
Þessu máli er lokið og ef eitthvað hefur verið um það rætt innan okkar raða gef ég ekkert upp um það," segir Sverrir Björn Björnsson, varaformaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Mikil ólga er meðal starfsmanna hjá slökkviliði Akureyrar eftir að einn reyndasti og vinsælasti starfsmaður stöðvarinnar var látinn taka pokann sinn vegna deilna við slökkviliðsstjórann. Hefur komið til tals að starfsmennirnir segi upp allir sem einn í mótmælaskyni. Málið er afar viðkvæmt enda um einn reyndasta slökkviliðsmann á landinu að ræða og átti hann meðal annars sæti í stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, LSS, um hríð. Í þeirri sömu stjórn er einmitt slökkviliðsstjóri Akureyrar, Erling Þór Júlínusson, en sá hefur oftar en einu sinni lent upp á kant við undirmenn sína og þurfti í þessu tilviki bæjarstjóri Akureyrar og bæjarráð allt að skerast tvisvar sinnum í leikinn. Í fyrra tilfellinu náðist sátt milli mannanna sem entist þó aðeins tímabundið og varð niðurstaðan sú að slökkvistjórinn hafði sitt fram og gerður var starfslokasamingur við undirmanninn. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur slökkvistjórinn, sem talsverð áhrif hefur, komið því þannig fyrir að litlar líkur eru á því að maðurinn sem um ræðir og hefur gífurlega reynslu af starfi slökkviliðsmanns fái nokkurn tíma slíkt starf aftur hér á landi. Fyrir hönd Landssambandsins vildi Sverrir Björn Björnsson, varaformaður, hvorki tjá sig um hvers vegna virtur félagsmaður væri gerður útlægur með þessum hætti né hafði skoðun á því að ólgan væri svo mikil meðal annarra starfsmanna slökkviliðsins á Akureyri að þeir íhuguðu í fyllstu alvöru uppsagnir.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira