Leikferill Cruise á enda? 13. október 2005 19:18
Menn velta því nú fyrir sér hvort glæsilegur leikferill Toms Cruise sé senn á enda eftir furðulega framkomu hans í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey. Jafnvel virðuleg dagblöð eins og New York Times og Washington Post hafa skrifað langar greinar um hegðun Cruise undanfarnar vikur. Hástemmdar yfirlýsingar um ást hans á leikkonunni ungu Katie Holmes hafa þótt, ekki aðeins ótrúverðugar, heldur beinlínis vandræðalegar. Þá þykir leikarinn farinn að blanda trú sinni á hinni svonefndu Vísindakirkju um of inn í starfið. Þegar verið var að kynna nýjustu mynd hans, Innrásin frá Mars, krafðist hann þess að vísindakirkjan fengi að reisa kynningartjald á lóð Paramount Pictures. Og ekki nóg með það - háttsettir stjórnendur kvikmyndaversins þurftu að sitja undir fjögurra klukkustunda kynningarfundi í fjárans tjaldinu. Framkoma Cruise í þætti Opruh Winfrey fékk svo menn til þess að velta því fyrir sér hvort hann sé yfirleitt með réttu ráði. Þar var hann enn með yfirlýsingar um ást sína á Katie Holmes og lék öllum illum látum. Hann hristi höfuðið eins og hundur af sundi dreginn. Hann dansaði fram og aftur um sjónvarpssalinn, hló eins og brjálæðingur, barði hnefunum í gólfið, féll á annað hnéð og baðaði út höndunum og stökk upp í sófann hjá Opruh og hoppaði þar upp og niður eins og hann væri á trampólíni - allt til þess að túlka ást sína á hinni fögru Katie. Gallinn er sá að fólk bara trúði honum ekki. Er því haldið fram að allt þetta tilstand hafa orðið til þess að stjórnendur Paramount eru sagðir orðnir hikandi við hvort þeir eigi að haldi sig við framleiðslu myndarinnar Mission Impossible III en tökur á henni áttu að hefjast í júlí.
Erlent Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira