Guðjón hættur hjá Keflavík 13. október 2005 19:12
Guðjón Þórðarson, þjálfari Keflvíkinga í knattspyrnu, tilkynnti forsvarsmönnum félagsins fyrir stundu að hann hefði rift samningi sínum. Ástæðan sem hann gaf upp eru vanefndir á samningi. Rætt verður við Guðjón í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Í fréttatilkynningu sem lögfræðingur Guðjóns sendi fjölmiðlum segist Guðjón harma að til riftunarhafi þurft að koma en forsendur sem menn gáfu sér í upphafi, hafi ekki reynst vera til staðar, hvorki fjárhagslegar né faglegar. Fréttatilkynning Guðjóns: Guðjón Þórðarson hefur ákveðið að rifta samningi við Knattspyrnudeild Keflavíkur sem kveður á um þjálfun og stjórnun meistaraflokks Keflavíkur. Ástæður riftunarinnar eru verulegar vanefndir Knattspyrnudeildar Keflavíkur á fjárhagslegum, jafnt sem faglegum skyldum samkvæmt samningnum sem undirritaður var 16. desember síðastliðinn. Af þessu tilefni vill Guðjón Þórðarson taka eftirfarandi fram: „Ég harma mjög að til riftunar á samkomulagi við Knattspyrnudeild Keflavíkur hafi þurft að koma. Ég gekk til þessa samstarfs af heilum hug en því miður hafa þær forsendur sem menn gáfu sér í upphafi ekki reynst vera til staðar, hvorki fjárhagslegar né faglegar. Eftir að hafa ítrekað skorað á viðsemjendur mína að standa við þær skuldbindingar sem samningur okkar kveður á um, án þess að það hafi borið árangur, stóð ég frammi fyrir þeim afarkosti að rifta samstarfinu. Það er einlæg trú mín að stjórn Knattspyrnudeildar Keflavíkur hafi gengið til þessa samstarfs af heilum hug og í góðri trú. Því miður hefur komið á daginn að félagið reyndist hvorki hafa fjárhagslegt né faglegt bolmagn til að standa við skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum. Það eru mér mikil og sár vonbrigði, þar sem ég hafði, á grundvelli samningsins, tekið ákvörðun um að setjast að á Íslandi og einbeita mér að uppbyggingu knattspyrnunnar í Keflavík. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hef ég reynt mitt ítrasta til að undirbúa liðið fyrir keppni á Íslandsmótinu og tel ég að það mæti vel undirbúið til leiks, leikmenn í góðu líkamlegu ástandi og leikskipulag liðsins orðið traust, auk þess sem erlendir leikmenn sem komið hafa til liðsins að mínu frumkvæði munu styrkja það verulega. Þar sem keppni á Íslandsmótinu hefst innan fárra daga, hef ég boðið stjórn Knattspyrnudeildar Keflavíkur liðsinni mitt við að koma liði félagsins af stað í mótinu og vera stjórnendum liðsins innan handar næstu daga og vikur.“ Reykjavík, 13. maí 2005 f.h. Guðjóns Þórðarsonar Borgar Þór Einarsson lögfræðingur Lawyer/Associate
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey Katar - Sviss | Nær Katar að vinna sinn fyrsta leik á HM? HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Russell byrjar á ráspól í Barcelona Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Dagskráin: Besta kvenna aftur af stað með risadegi Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Sjá meira