Smáhundar á Íslandi á 12. öld 1. maí 2005 00:01
Bein frá 12. öld af smáhundum hafa fundist við fornleifauppgröft að Kolkuósi. Þetta er elsta dæmi um smáhunda á Íslandi og telur fornleifafræðingur að Hólabiskupar hafi haft hundana sem stöðutákn, en einnig sem eins konar hitapoka til að verma upp rúm. Rannsókn fornleifa við Kolkuós er hluti viðamikillar fornleifarannsóknar sem tengist biskupssetrinu að Hólum í Hjaltadal. Þar hefur fundist fjöldi dýrabeina sem verið er að greina í Danmörku. Meðal annars hafa menn fundið þar elstu merki um rottur á Íslandi en einnig merki um innflutning ávaxta. Það sem þó hefur komið einna mest á óvart eru bein smáhunda og hefur tegundin nú verið greind, möltuhundur, kenndur við eyjuna Möltu. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur segir að þrír hundar af þessari tegund hafi fundist við Kolkuós. Þar hafi líka fundist fleiri hundategundir og verið sé að greina beinin. Kolkuós hafi verið höfn Hólastaðar og því hafi menn hugsanlega flutt hundana inn frá Skandinavíu eða Evrópu. Ragnheiður segir enn fremur að við uppgröftinn hafi einnig fundist silfurpeningur frá Kölnarsvæðinu í Suður-Þýskalandi og hann sé frá því rétt eftir 1100. Það séu því ótvíræð merki um að Hólastóll hafi staðið fyrir innflutningi á ýmsu. Bein smáhundanna hafa verið aldursgreind og eru þau frá 12. öld eða frá þeim tíma sem Hólastóll var að byggjast upp. Vitað er að höfðingjar í Evrópu á þessum tíma höfðu slíka hunda sem stöðutákn og voru þeir dýr verslunarvara, margfalt dýrari en góðir veiðihundar. Ragnheiður segir hundana einnig hafa verið notaða sem hitadýnur, þeir hafi hitað upp rúmin. Höfðingjarnir eða konurnar þeirra hafi hugsanlega viljað vera eins og aðrir höfðingjar eða biskupar í Evrópu, eiga stöðutákn sem þetta.
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sjá meira