Hafísinn færist nær landi 14. mars 2005 00:01
Hafísinn fyrir norðanverðu landinu færist nær og er nú m.a. kominn inn í Skagafjörð og Húnaflóa. Íbúar við ströndina taka honum ekki fagnandi. Að sögn Þórs Jakobssonar veðurfræðings hefur ísinn færst suður fyrir Grímsey sem bendi til þess að hann sé ekki mikill þar fyrir norðan. Þór segir hafís á siglingaleið alveg úti fyrir Norður- og Norðausturlandi og inni í stöku fjörðum. Hann er til dæmis kominn inn í Skagafjörð, Húnaflóa og vestanverðan Siglufjörð. Þá fréttist líka af honum í gær á Bakkafirði og Vopnafirði. Siglingaleiðin kringum landið er þó opin alls staðar en brýnt er fyrir sjófarendur að fara með gát, ekki síst að nóttu til. Íbúar við norðurströndina eru ekki ánægðir með þennan sjaldséða gest. Valgeir Benediktsson er fæddur og uppalinn á Ströndum en hefur búið í Árnesi í Trékyllisvík í 23 ár. Hann segir að hafíshrafl sé í fjörunum við Árnes og þá sé ísspöng úti fyrir í víkinni. Valgeir segir sjaldgæft að sjá hafís í Trékyllisvík þótt hún standi fyrir opnu Norður-Atlantshafinu. Vörur koma með flugi svo ekki þarf að hafa áhyggjur af vöruskorti í kaupfélaginu í Norðurfirði. Grímseyingar hafa áhyggjur af ísnum þar sem hann kemur í veg fyrir að þeir geti sótt sjó. Aðspurður hvort ísinn hafi einhver áhrif á daglegt líf og störf á Ströndum segir Valgeir svo ekki vera því engir bátar rói þaðan á þessum tíma. Spurður hvort hægt sé að hafa gaman af ísnum segir Valgeir að þeim fullorðnu finnist þetta ekki skemmtilegt en krakkarnir hafi gaman af ísnum. Fólk vilji losna við hann sem fyrst.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Fleiri fréttir Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Sjá meira