Lög brotin á heilabiluðum 11. mars 2005 00:01 "
Ég er með í undirbúningi að skipa starfshóp til að fara yfir málefni þessa hóps sérstaklega," segir Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, vegna nýrrar skýrslu þar sem fram kemur að víða sé pottur brotinn í málefnum aldraðra með heilabilun. Skýrt stendur í lögum að slíkir sjúklingar skuli njóta sérstakrar aðstöðu á öldrunarstofnunum en raunin er önnur. Í nýútkominni skýrslu eftir Hönnu Láru Steinsson, félagsráðgjafa á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, kemur fram að lög séu þverbrotin gagnvart þeim einstaklingum sem þjást af heilabilun. Skýrt sé tekið fram í 14. grein í lögum um málefni aldraðra að slíkir einstaklingar skuli hafa sérstaka aðstöðu en reyndin sé að slíkt sé fátítt. Lausleg könnun Fréttablaðsins á tíu hjúkrunarheimilum víða um landið staðfestir þetta og í tveimur tilvikum var slíkum sjúklingum komið fyrir á sjúkrahúsi. Víðast verða heilabilaðir að dvelja ásamt öðrum á almennum deildum. Dæmi eru einnig um að lög þessi séu virt að vettugi þegar kemur að hönnun og byggingu nýrra hjúkrunarheimila. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri aðstöðu þessa fólks við byggingu nýs heimilis á Selfossi og ekki var heldur tekið tillit til þess þegar Vífilsstöðum var breytt í hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Engu að síður gera áætlanir ráð fyrir að sjúklingum með heilabilun fjölgi um helming og verði tæplega sex þúsund talsins á næstu tuttugu árum. Heilbrigðisráðherra segir að þjónusta við heilabilaða hafi aukist undanfarin ár en viðurkennir að betur megi ef duga skal. "Auðvitað skiptir máli hvernig þjónustu þetta fólk fær og ég tel að það fái hana á þeim stöðum þar sem það er en stefnan er að sjálfsögðu að allir fái þá þjónustu sem lögbundin er. Líta verður þó á að sums staðar eru fáir sjúklingar og annars staðar talsverður fjöldi og haga verður seglum að einhverju leyti eftir vindi hvað það varðar."
Fréttir Innlent Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Sjá meira