Innlent

Lög brotin á heilabiluðum

"Ég er með í undirbúningi að skipa starfshóp til að fara yfir málefni þessa hóps sérstaklega," segir Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, vegna nýrrar skýrslu þar sem fram kemur að víða sé pottur brotinn í málefnum aldraðra með heilabilun. Skýrt stendur í lögum að slíkir sjúklingar skuli njóta sérstakrar aðstöðu á öldrunarstofnunum en raunin er önnur. Í nýútkominni skýrslu eftir Hönnu Láru Steinsson, félagsráðgjafa á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, kemur fram að lög séu þverbrotin gagnvart þeim einstaklingum sem þjást af heilabilun. Skýrt sé tekið fram í 14. grein í lögum um málefni aldraðra að slíkir einstaklingar skuli hafa sérstaka aðstöðu en reyndin sé að slíkt sé fátítt. Lausleg könnun Fréttablaðsins á tíu hjúkrunarheimilum víða um landið staðfestir þetta og í tveimur tilvikum var slíkum sjúklingum komið fyrir á sjúkrahúsi. Víðast verða heilabilaðir að dvelja ásamt öðrum á almennum deildum. Dæmi eru einnig um að lög þessi séu virt að vettugi þegar kemur að hönnun og byggingu nýrra hjúkrunarheimila. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri aðstöðu þessa fólks við byggingu nýs heimilis á Selfossi og ekki var heldur tekið tillit til þess þegar Vífilsstöðum var breytt í hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Engu að síður gera áætlanir ráð fyrir að sjúklingum með heilabilun fjölgi um helming og verði tæplega sex þúsund talsins á næstu tuttugu árum. Heilbrigðisráðherra segir að þjónusta við heilabilaða hafi aukist undanfarin ár en viðurkennir að betur megi ef duga skal. "Auðvitað skiptir máli hvernig þjónustu þetta fólk fær og ég tel að það fái hana á þeim stöðum þar sem það er en stefnan er að sjálfsögðu að allir fái þá þjónustu sem lögbundin er. Líta verður þó á að sums staðar eru fáir sjúklingar og annars staðar talsverður fjöldi og haga verður seglum að einhverju leyti eftir vindi hvað það varðar."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×