Sögulegt tækifæri 2. mars 2005 00:01
Skipulagsráð Reykjavíkur hefur boðið Háskólanum í Reykjavík lóð í Vatnsmýrinni undir starfsemi sína. Lóðin er sunnan við Hótel Loftleiðir, rétt ofan við baðaðstöðuna í Nauthólsvík. Að sögn Dags B. Eggertssonar, formanns skipulagsráðs, hefur málið verið í vinnslu síðan í haust og er búist við að stjórn skólans taki ákvörðun um málið á næstu vikum. Háskóli Íslands er ekki langt undan og þegar fram líða stundir verður nánast öll starfsemi Landspítala - háskólasjúkrahúss í Vatnsmýrinni líka. Með tilkomu Háskólans í Reykjavík á svæðið telur Dagur að þar með hafi skapast kjöraðstæður til sköpunar svonefnds þekkingarþorps í Vatnsmýrinni þar sem fyrirtæki og stofnanir af ýmsu tagi nýta samlegðaráhrifin af nálægðinni hvert við annað til að styrkja sig enn frekar. "Við erum í raun komin með svæði þar sem sjá má fyrir sér að allt að rúmlega 20.000 manns séu að störfum nánast daglega við háskóla, hátækni og þekkingu." Lóðaverð í borginni er hátt um þessar mundir enda er framboðið takmarkað. Dagur segir enn ekki ljóst hvort skólinn muni greiða fyrir lóðina. "Það er í rauninni aðferðafræði sem við eigum eftir að fara yfir. Við viljum fyrst og fremst vita hvort þeir komast þarna fyrir. Við þurfum náttúrlega að líta yfir fyrri fordæmi og annað slíkt," segir hann og bendir á að á sínum tíma hafi Reykjavíkurborg gefið Háskóla Íslands mjög myndarlega lóðargjöf. Dagur vonast hins vegar til að stjórn skólans taki fljótlega ákvörðun um málið enda er mikið í húfi. "Við erum mjög áfram um að Háskólinn i Reykjavík og tengd starfsemi verði þarna. Við teljum þetta eiginlega varða þjóðarhagsmuni að við nýtum þetta eina tækifæri sem við kannski nokkurn tímann fáum til að leggja saman alla kraftana á þessu sviði á þessu lykilsvæði." Flugvöllurinn verður að víkja Þegar jafn stórt verkefni er annars vegar er mikilvægt að vel sé að verki staðið. Þótt Erni Sigurðssyni, formanni Höfuðborgarsamtakanna, lítist mjög vel á að Háskólanum í Reykjavík verði fundinn staður í Vatnsmýrinni er hann ósáttur við þá leið sem borgaryfirvöld hafa farið. "Við viljum að allt svæðið verði skipulagt í heild áður en einstakir hlutar verði teknir. Það er verið að búa til frímerki hér og frímerki þar, það er í raun verið brjóta þetta fjöregg upp í nokkra búta og búa til úr því ónýta eggjaköku," segir hann. Að sögn Dags stendur heildarendurskoðun á skipulagi Vatnsmýrar fyrir dyrum og þar verður framtíðarstaðsetning skólans tekin með í reikninginn. Örn gefur hins vegar lítið fyrir það. "Þetta verður að gera áður en menn leggja hraðbraut í gegnum mýrina og negla niður staðsetningu á nýrri flugstöð við flugvöllinn. Að skipuleggja tvo háskóla og eitt landssjúkrahús krefst þess að menn setjist niður núna, ekki seinna en síðdegis." Síðast en ekki síst er það lykilatriði í huga Arnar að flugvöllurinn víki, hann segir þekkingarþorp útilokað með flugvöll í því miðju. "Þetta eru allt mikilvægar stofnanir og þær eiga það ekki skilið að lenda í einhverju flugvallarúthverfi í borg. Háskólinn í Reykjavík á það bara skilið að honum verði ekki bara hrúgað þarna niður án hugsjónar." Fornebu fyrirmynd? Þekkingarþorp eru þekkt víða um heim og er Kísildalurinn í Kaliforníu sjálfsagt það frægasta. Þar nýta menn samlegðaráhrif með nálægð og greiða þannig fyrir samstarfi á milli háskóla og fyrirtækja til að búa til frjótt nýsköpunarumhverfi. Þekkingarþorpin eru þannig meira en summan af þeim fyrirtækjum og stofnunum sem þar eru. Stefán Ólafsson, prófessor og forstöðumaður Borgarfræðaseturs Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar, segir svæði á borð við þessi gegna lykilhlutverki í þekkingarhagkerfi framtíðarinnar. "Alls staðar í heiminum í dag er litið til svona þyrpinga sem eins konar aflstöðvar fyrir framþróun þekkingarhagkerfisins sem gengur út á að nýta þekkingu til nýsköpunar og framleiðslu," segir hann. Auk háskólanna getur fjölbreytt flóra fyrirtækja þrifist í þekkingarþorpum, til dæmis tölvu- og hugbúnaðarfyrirtæki, efnistæknifyrirtæki, upplýsingaveitur og líftæknifyrirtæki, en þegar er eitt slíkt í Vatnsmýrinni, Íslensk erfðagreining. "Þetta er byggð sem fellur einstaklega vel að miðborgarumhverfi því þetta getur orðið mjög fallegt og spennandi svæði," segir Stefán. Stefán bendir á nærtækt dæmi um þekkingarþorp en það er Fornebu-svæðið í Osló þar sem gamli alþjóðaflugvöllurinn var. "Það er tekið að stórum hluta undir svona þróun þekkingarþyrpingar í bland við íbúðarbyggð og það getur þess vegna verið mjög álitleg fyrirmynd fyrir Reykjavík að hafa til hliðsjónar."
Fréttir Innlent Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Þekkir ekki muninn á stungu og snertingu Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Sjá meira