Innlent

Landlæknir styður reykingafrumvarp

Landlæknir lýsir yfir eindregnum stuðningi sínum við tóbaksvarnarfrumvarpið sem nýlega var lagt fram á Alþingi. Í því er m.a. gert ráð fyrir algeru reykingabanni á hótelum, veitingahúsum, börum og öðrum skemmtistöðum, líkt og gert hefur verið til að mynda á Ítalíu, Írlandi og í Noregi. Á heimasíðu Landlæknis segir að í ljósi þeirra upplýsinga sem nú liggi fyrir um skaðsemi óbeinna reykinga hljóti það að vera sjálfsögð réttindi starfsfólks á öllum vinnustöðum að það geti sinnt sínu starfi í reyklausu rými.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×