Innlent

Arnaldur skipaður við Glerárkirkju

Valnefnd í Glerárkirkju mælir með því að sr. Arnaldur Bárðarson verði skipaður prestur við söfnuðinn en Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára. Umsóknarfrestur rann út 14. febrúar síðastliðinn og var Arnaldur eini umsækjandinn. Arnaldur hefur undanfarin ár starfað sem sóknarprestur í Ljósavatnsprestakalli og sem prestur í Glerárkirkju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×