Innlent

Þurfum skýrar reglur

Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir augljóst að Íslendingar þurfi á erlendu vinnuafli að halda en reglurnar varðandi komu útlendinga til starfa hér á landi þurfi að vera skýrar og framkvæmanlegar. "Við megum ekki falla í þann pytt að láta allt aðrar reglur og önnur viðmið gilda um þetta fólk en okkur sjálf. Okkur hefur fundist örla á því að menn eltist við þessa útlendinga í staðinn fyrir að beina sjónum sínum í ríkari mæli að fyrirtækjunum sjálfum og passa upp á að þar sé allt í lagi, hvort sem það eru útlendingar eða Íslendingar sem vinna vinnuna," segir hann. Jón segir mikilvægt að gætt sé að því að samkeppnisskilyrðin séu jöfn á milli fyrirtækja þannig að íslensk og erlend fyrirtæki sem hér eru séu að keppa á jafnréttisgrundvelli. "Fyrirtæki sem fara að settum reglum eru viðkvæm fyrir því að keppa við þá sem ekki fara að reglunum. Það gengur ekki," segir hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×