Almenn ánægja með uppsagnir 1. mars 2005 00:01
Almenn ánægja virðist vera meðal leikara Þjóðleikhússins með uppsagnir í þeirra röðum, jafnt hjá þeim sem misstu vinnuna og þeim sem sluppu með skrekkinn. Sumir þeirra viðurkenna þó að aðferð leikhússtjóra hafi skapað vanlíðan. Þeir þrír leikarar sem sagt var upp samningum við eru Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir og Þórunn Lárusdóttir. Sólveig sagðist í hádegisfréttum Bylgjunnar vera lukkuleg með uppsögnina. Þórunn Lárusdóttir sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að síðastliðin helgi hefði verið einkennileg en þjóðleikhússtjóri tilkynnti fyrir helgi að ætlunin væri að segja upp tíu samingum við leikara og eðlilegasta aðferðin væri að taka þá sem stystan starfsaldur hefðu. Þórunn Lárusdóttir sagði leikhússtjóra hafa staðið ágætlega að þessu og hún myndi vinna aftur í Þjóðleikhúsinu undir Tinnu Gunnlaugsdóttur. Leikarar sem sögðu upp sjálfviljugir og Stöð 2 ræddi við í dag töldu líka að allt þetta ferli í lagi en enginn vildi tjá sig undir nafni. Reyndar gáfu sumir þá skýringu að þeir vildu ekki rugga bátnum, eins og það var orðað. Rúnar Freyr Gíslason, formaður félags leikara við Þjóðleikhúsið, sagðist í samtali við Stöð 2 í dag ekki hafa fengið neinar kvartanir frá sínum félagsmönnum vegna uppsagnanna. Reyndar var ljóst áður en þjóðleikhússtjóri tilkynnti leikurum að til stæði að fækka um tug að einhverjir væru þegar búnir að láta vita að þeir ætluðu ekki að starfa áfram við stofnunina. Tinna Gunnlaugsdóttir sagði í fréttum í gær að hún hefði fyrir helgi vísvitandi skapað óvissu, jafnvel hættuástand, meðal starfsmanna sinna til að fá viðbrögð við ákvörðun sinni. Hún neitaði því hins vegar að með því hefði hún sett þrýsting á þá starfsmenn sem síðan sögðu upp að fyrra bragði. Ásta Bjarnadóttir, lektor á sviði mannauðsstjórnunar við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, sagði í samtali við Stöð 2 í dag að þessi aðferð væri þekkt. Stórfyrirtæki erlendis notuðu hana gjarnan þegar fækka þyrfti fólki og kæmust þar með hjá uppsögnum. Venjan væri sú að einhver ágóði fælist í því fyrir viðkomandi starfsmann að segja upp. Slíku virðist að vísu ekki hafa verið til að dreifa í þessu tilfelli en aðferðin væri engu að síður sú sama. Almennt þyki þetta mildari aðferð en að fara beint í uppsagnir.
Fréttir Innlent Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Sjá meira