Innlent

Loðnuhátíð á Eskifirði

Það var hátíðarstemmning á Eskifirði í dag en þá var búið að landa þar þrjátíu þúsund tonnum af loðnu. Til hátíðarbrigða var boðið upp á tertu til að fagna þessum merka áfanga. Loðnan á vertíðinni hefur þótt afar gott hráefni og góð til vinnslu. Hún hefur öll farið í bræðslu. Á Eskifirði horfa menn því björtum augum til framtíðarinnar í loðnuvinnslunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×