Innlent

Metfjöldi farþega í Leifsstöð

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp sextán prósent í janúar miðað við sama tíma í fyrra. Þeir hafa aldrei verið fleiri í janúarmánuði eða tæplega 86 þúsund. Milli áranna 2003 og 2004 fjölgaði farþegum um fjórtán prósent . Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, segir enga haldbæra skýringu liggja fyrir um fjölgun farþega. Í fyrra hafi verið gripið til skýringa eins og að flugfélagið Iceland Express hafi bæst við markaðinn. "En almennt teljum við að landinn ferðist meira þar sem fleiri ferðir eru í boði á veturna en var. Fólk fer mikið til sólarlanda. Kannski spilar veðrið inn í aukna ásókn," segir Hrönn. Það séu þó aðeins vangaveltur. Farþegum um Flugstöðina fjölgaði um tuttugu prósent milli áranna 2003 og 2004 eða um 270 þúsund og voru um 1,6 milljónir. Samkvæmt könnun breska fyrirtækisins BAA Plc er talið að þeir verði 3,1 milljón árið 2015.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×