Innlent

Dregið fyrir stjörnurnar

Borgaryfirvöld hafa hafnað hugmynd menningar- og ferðamálasviðs borgarinnar um að slökkva tímabundið á götulýsingu í Reykjavík. Fjallað var um málið í borgarráði í gær. Hugmynd menningar- og ferðamálasviðs snerist um að krydda mannlífið í höfuðborginni og opna borgarbúum sýn til stjörnuhiminsins með því að slökkva á götulýsingu. Í bókun borgarráðs er þakkað fyrir hugmyndina en sagt að götuljós séu öryggistæki og sjái borgarráð sér ekki fært að svo stöddu að hrinda hugmyndinni í framkvæmd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×