Innlent

Lesblinda dregur úr viðbragðsflýti

Lesblinda getur dregið úr viðbragðsflýti ökumanna samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem Hermundur Sigmundsson, við háskólann í Þrándheimi í Noregi, stóð fyrir. Niðurstöðurnar eru kynntar í nýjasta tölublaði New Scientist. Rannsóknin leiddi í ljós að lesblindir voru að meðaltali 30 prósent lengur að bregðast við en aðrir. Tímaritið segir að þessir niðurstöður muni vekja upp spurningar um hvort lesblindir verði látnir gangast undir strangari ökupróf en aðrir í framtíðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×