Innlent

Áramótabrennur fyrir vestan í dag

Nýju ári verður fagnað og það gamla kvatt fyrir vestan með áramótabrennum í dag, annan dag ársins. Á Ísafirði hefst brennuhald klukkan fimm og flugeldasýning hálftíma síðar. Brennuhaldið hefst klukkan átta í Hnífsdal og þar verður einnig flugeldasýning hálftíma seinna. Búist er við stormi á norðvestanverðu landinu á morgun og segja Vestfirðingar að líklega séu tveir möguleikar í stöðunni úr því sem komið er: kveikja í því efni sem búið er að safna í brennurnar í dag eða safna því saman aftur eftir hvellinn á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×