Sprengjusérfræðingar kallaðir til vegna tundurdufls 11. nóvember 2005 15:29
Tveir menn úr sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eru að leggja af stað með björgunarþyrlunni Líf til að gera óvirkt tundurdufl sem kom upp með veiðarfærum togarans Þórunnar Sveinsdóttur VE-401. Skipið er statt á Skrúðsgrunni út af Austfjörðum. Að sögn Dagmars Sigurðardóttur, upplýsingafulltrúa Gæslunnar, er ekki talið að skipverjum sé hætta búin en nauðsynlegt er að sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar geri tundurduflið óvirkt áður en hreyft er við því. Skipstjóri Þórunnar Sveinsdóttur hafði fyrst samband við varðskipið Tý sem var í grenndinni og óskaði eftir aðstoð vegna torkennilegs hlutar sem komið hafði upp með vörpu togarans. Taldi hann að e.t.v. væri um að ræða tundurdufl eða hlustunardufl. Í framhaldi af því fóru varðskipsmenn frá Tý um borð í Þórunni og staðfestu í samráði við sprengjusveit Landhelgisgæslunnar að um tundurdufl væri að ræða, nánar tiltekið sprengiefnistunnu úr tundurdufli ásamt forsprengju og hvellhettu. Talið var nauðsynlegt að fá sprengjusérfræðing til aðstoðar án tafar og fóru því tveir menn úr sprengjusveit Landhelgisgæslunnar með björgunarþyrlunni Líf austur fyrir land þar sem þeir munu síga niður í varðskipið Tý og fara þaðan um borð í Þórunni Sveinsdóttur. Skipin stefna nú í átt til Reyðarfjarðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Erlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Ísland land númer 197 Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Erlent Fleiri fréttir Bjóða Grindvíkingum upp a ókeypis námskeið til að byggja upp seiglu Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Eftirköstin af gjaldþroti Play og friðaráætlun á Gasa Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Hættir sem þingflokksformaður Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Hópslagsmál og hundaárás Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Sjá meira