Innlent

Heimilin skulda 65 milljarðar króna í óverðtryggðum lánum

 

Vextir óverðtryggðra lána hafa hækkað um fimmtíu prósent á innan við einu og hálfu ári, og geta farið yfir átján prósent. Heimilin skulda sextíu og fimm milljarða króna í óverðtryggðum lánum.

Algengir vextir á verðtryggðum lánum eru um fimm prósent, þannig að það þarna er þrettán prósenta munur. Það er því full ástæða fyrir neytendur að forðast eins og þeir mögulega geta að taka óverðtryggð lán.

Algengasta tegund óverðtryggðra lána hjá almenningi eru yfirdráttarlán sem tengjast kortanotkun, og þau eru jafnvel ennþá dýrari, upp í tuttugu prósent. Heildarskuldir heimilanna í þessum lánum eru sextíu og fjórir milljarðar króna.

Við getum sett upp einfalt dæmi. Segjum að heimili taki eina milljón króna að láni, til dæmis vegna bílakaupa. Vaxtagreislur af því láni næmu fimmtíu þúsund krónum ef það væri venjulegt verðtryggt lán, en eitthundrað og áttatíu þúsund krónum, ef það væri óverðtryggt.

Það eru sífelldar hækkanir Seðlabankans á stýrivöxtum sem valda þessari vaxtahækkun, því stýrivextirnir virka beint á útlánsvexti viðskiptabankanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×