Sniglaplága í Danmörku 20. ágúst 2005 00:01
Garðeigendur í Danmörku keppast nú við að drepa Spánarsnigla í tugþúsundatali. Sniglarnir eru orðnir alger plága og virðist fjölga með hverju árinu. Spánarsniglarnir bárust til Danmerkur fyrir um fimmtán árum. Þeir eru vanir þurru og heitu loftslagi við Miðjarðarhafið, að sögn Hans Eriks Svarts, líffræðings hjá Náttúruvernd Danmerkur, sem gerir honum erfitt fyrir að fjölga sér. Hann framleiðir því ógrynnin öll af eggjum því aðeins nokkrir sniglar ná fullum þroska. Í Danmörku eru sumrin hins vegar mun rakari, sem eru kjöraðstæður fyrir snigilinn, svo honum hefur fjölgað óskaplega síðustu árin. Í dagblaðinu Berlingske Tidende er í dag rætt við Birgit Gjödvad sem býr í Sabro á Austur-Jótlandi. Garðurinn hennar er fimm þúsund fermetrar og undirlagður af Spánarsniglum. Hún ákvað að hefja baráttu við óvættirnar í fyrrasumar og nú fer hún á hverju einasta kvöldi með fötu af saltvatni og safnar í hana sniglum. Hún telur þá samviskusamlega og í fyrrakvöld drap hún snigil númer 37.800. Sniglarnir eru svona illa liðnir vegna þess að þeir éta allt sem að kjafti kemur, kálhausar hverfa til dæmis áður en þeir ná upp úr moldinni ef sniglarnir komast í þá. Vandamálið er að það er afar lítið vitað um hvaða baráttuaðferðir duga gegn sniglinum. Hann hefur lítið verið rannsakaður og á meðan renna garðeigendur blint í sjóinn og tína og tína og tína og tína og vita ekki hvort það hefur nokkur áhrif á það hversu margir sniglar verði í garðinum á næsta ári. Spánarsnigillinn hefur einnig gert óskunda í Noregi, en hefur ekki fundist hérlendis enn þá.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira