Erlent

Kastaði sprengju inn í skólastofu

Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust er nemandi í japönskum menntaskóla henti flösku sem innihélt sprengjuefni inn í bekkjarstofu skóla síns í morgun. Drengurinn, sem er 18 ára, hefur verið handtekinn. Lögreglan hefur ekki viljað gefa upp hvers konar efni voru í flöskunni en sjónarvottar segja að um nokkurs konar mólotovkokkteil hafi verið að ræða. Þrátt fyrir að enginn hafi slasast lífshættulega kvörtuðu nemendur undan verk í eyrum og augum og er málið í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×