Innlent

Stífla brast í Sandá í gær

Verulegt tjón varð þegar stífla brast í Sandá við Eyvindartungu, skammt frá Laugarvatni, í gærkvöldi. Tvær rafmagnsvirkjanir í ánni, sem eru í einkaeigu, urðu óvirkar vegna óhappsins og þótti mildi að ekki urðu slys á fólki. Efri virkjunin var tekin í notkun í mars síðastliðnum en neðri stöðin árið 2003. Snæbjörn Þorkelsson, annar eiganda virkjananna við Eyvindartungu, segir að eftir langvarandi þurrka hafi verið lítill leki í gegnum stífluna og við þann aukna þrýsting sem komið hafi á hana vegna rigninga virðist sem hún hafi gefið sig. Aðspurður hversu mikið tjónið sé segir Snæbjörn að erfitt sé að átta sig á því eins og staðan sé núna. Það eigi eftir að kanna betur vélbúnað en tjónið sé tilfinnanleg. Jarðvegur hafi farið í geysilegu magni og mikil vélavinna sé fyrir höndum við að endurbyggja stífluna. Snæbjörn segist hafa verið við stífluna í gærmorgun og þá hafi allt verið í stakasta lagi og því hafi það komið mjög á óvart að stíflan brysti. Aðspurður um tækjabúnað segir Snæbjörn að búnaður í efri stöðinni sé í góðu lagi en ekki sé búið að kanna neðri stöðina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×