Innlent

Tapaði á áhættufjárfestingum

Málræktarsjóður hefur ekki úthlutað styrkjum síðustu þrjú ár vegna fjármagns sem tapaðist með áhættufjárfestingum árið 2000 og sennilega eru tvö ár í að hann geti úthlutað næst. Samkvæmt reglum sjóðsins má hann ekki ganga á eigin höfuðstól og því hefur hann ekkert úthlutað þrátt fyrir hagnað á síðustu árum. Þrátt fyrir níu milljóna króna hagnað á þessu ári vantar sjóðinn enn um tíu milljónir upp á að hann komist aftur upp í upprunalegan höfuðstól. Uppreiknaður höfuðstóll sjóðsins er 126 milljónir. Í árskýrslu stjórnar Málræktarsjóðs fyrir síðasta ár kemur fram að ein helsta ástæða slakrar stöðu sjóðsins séu fjárfestingar Kaupþings fyrir hönd sjóðsins árið 2000 í sjóðnum Alpha 1 Venture, sem er áhættufjárfestingarsjóður á sviði upplýsingartækni. Málræktarsjóður var stofnsettur árið 1991 af íslenskri málnefnd. Markmið sjóðsins er að beita sér fyrir og styðja hvers konar starfsemi til eflingar íslenskri tungu og varðveislu hennar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×