Innlent

Skilnaðartíðni óbreytt í 15 ár

Giftingaraldur Íslendinga hefur hækkað um hátt í tíu ár á síðustu 40 árum samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þá hefur skilnaðartíðni  hér á landi haldist nánast óbreytt síðastliðin fimmtán ár. 1.472 hjónavígslur fóru fram hér á landi á síðasta ári en lögskilnaðir voru 552 eftir því sem fram kemur í tölum Hagstofunnar. Þá staðfestu 17 pör samvist sína, níu karlapör og átta pör kvenna, og þrjú pör í staðfestri samvist skildu að lögum. Giftingartíðni reiknuð sem fjöldi hjónavígslna af 1.000 íbúum var 5,0 og skilnaðartíðni 1,9. Langflest hjónabönd eiga sér stað að undangenginni óvígðri sambúð og samkvæmt upplýsingum á hjónavígsluskýrslum bjuggu nær níu af hverjum tíu hjónaefnum saman áður en þau festu ráð sitt. Árið 2004 skráðu 1.762 pör sig í óvígða sambúð hjá þjóðskrá og eru stofnaðar sambúðir heldur fleiri en hjónavígslur, eða 6,0 af 1.000 íbúum. Talsverðar breytingar hafa orðið á giftingaraldri á undanförnum áratugum. Tíðasti giftingaraldur ókvæntra karla var 30 ár á árinu 2004 samanborið við 21 ár á árabilinu 1961-1965 og ógiftra kvenna 27 ár samanborið við 19 ár á árabilinu 1961-1965. Hagstofan segir að giftingartíðni hafi verið háð allmiklum sveiflum á undanförnum áratugum. Á 7. áratugnum og upphafi þess 8. hafi hún verið í kringum 8 af 1.000 íbúum en lækkaði ört eftir það. Lægst hafi hún orðið á árunum í kringum 1990 en þá féll hún niður fyrir 5 af 1.000 íbúum en síðan þá hafi hún nokkuð hækkað og sé hún nú svipuð og í Noregi og Finnlandi Skilnaðartíðni hefur verið háð mun minni sveiflum en giftingartíðni á undanförnum 20 árum. Við upphaf 7. áratugarins var skilnaðartíðni 1 af hverjum 1.000 íbúum en hækkaði ört á 7. og 8. ártugnum. Við upphaf 9. áratugarins var skilnaðartíðni orðin 2 af 1.000 íbúum en síðan þá hafa engar breytingar orðið á skilnaðartíðni, en í samanburði við hin Norðurlöndin er skilnaðartíðni afar lág hér á landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×