Í leit að galdri óperunnar 10. nóvember 2005 21:45 Bjarni Daníelsson óperustjóri. Fyrsti áfangi óperudeiglu Íslensku óperunnar fer af stað í dag með opnum kynningarfundi. "
Hugmyndin er fyrst og fremst sú að Íslenska óperan standi fyrir því að það sé heitt á könnunnni, að það sé alltaf heitt í þessari deiglu," segir Bjarni Daníelsson, óperustjóri Íslensku óperunnar. Í dag býður Íslenska óperan öllum sem áhuga hafa til fyrstu samkomu Óperudeiglunnar, sem á að verða vettvangur fyrir tilraunastarf og nýsköpun á sviði óperulistar. "Óperan hefur óneitanlega dregist svolítið aftur úr þegar kvikmyndirnar og söngleikirnir tóku á rás, en hún er samt þessi fjöltæknigaldur sem menn njóta í miklu návígi. Þess vegna trúi ég því að þetta form, óperan, eigi erindi til margra og hún eigi að geta náð aftur þessari nánast poppstöðu sem óperan hafði á klassíska tímanum." Efni fundarins verður kynning á Óperudeiglunni og umræður um áherslur og leiðir í framkvæmd verkefnisins. Vonir standa til þess að tónskáld sem vilja semja óperur muni taka þátt í deiglunni, sömuleiðis ýmsir sem hafa sérþekkingu á leikhúsi og skyldum listgreinum og allir sem hafa brennandi áhuga á óeruforminu. "Þarna gætu komið allir sem hafa eitthvað til málanna að leggja um það hvernig óperan geti höfðað til margra án þess að slegið sé af listrænum kröfum. Það er sama hvaðan gott kemur. En þó verður að gera ráð fyrir því að þegar kemur að harðsvíraðri úrvinnslu þá sé það fyrst og fremst fagfólk á þessu sviði sem leiði vinnuna." Óperudeiglunni er ætlað að vera tvennt í senn: Annars vegar opinn vettvangur til umfjöllunar og skoðanaskipta um óperusmíði. Hins vegar skipulegt vinnuferli hópa einstaklinga með ólíka sérþekkingu sem vilja gera tilraunir með óperuformið í þeim tilgangi að skapa ný verk sem höfða til margra. Haldnir verða opna málfundir og starfsfundir um óperulist þar sem jafnframt er fjallað á gagnrýninn hátt um verk tilraunahópanna. "Í sjálfu sér er gert ráð fyrir þremur aðaláföngum. Sá fyrsti snýst nú eiginlega bara um að róta upp hugmyndum og koma á þær svolítilli mynd. Síðan er meiningin að velja úr þeim hugmyndum einhvern fjölda til áframhaldandi úrvinnslu, og svo er þriðji áfangi þegar aftur verður valið og jafnvel unnið úr því fullburða verk." Hugmyndin er þó ekki sú að þetta verði línulegt ferli sem eigi að leiða beint að stórvirkjum, heldur er meiningin að þegar fyrsta áfanga er lokið verði hann strax endurtekinn. Sama verður gert með annan áfanga. "Þetta verður því eins og heit deigla í potti. Síðan getur hver sem vill vinna með þær hugmyndir eða með því fólki sem er þarna komið og hellt úr þessari deiglu í eitthvert mót."
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira