Tvær konur fundust látnar 10. nóvember 2005 03:30 Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprestur segir velferðarkerfið öryggisnet sem ekki geti komið í stað náungakærleiks. "
Þetta er harmleikur. Við hljótum að hugsa til ýmissa sem eru einir. Þessi einmanaleiki er löngu kominn til sögunnar þegar þetta gerist," segir séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur. Um síðustu helgi fundust tvær konur látnar á heimilum sínum í Reykjavík. Önnur þeirra hafði verið látin í allt að þrjár vikur og hin í að minnsta kosti tíu daga áður en þær fundust. Þær voru 78 ára og 61 árs og bjuggu báðar einar í fjölbýlishúsum. Í báðum tilvikum var það nálykt sem vakti undrun og eftirgrennslan. Hjálmar telur að nú sé hægt að spyrja sig hvort viðhorf fólks til náunga síns hafi breyst. "Þá þurfum við líka að vera á verði gagnvart því," segir Hjálmar. Aðstandandi eldri konunnar segir að þegar fólk er orðið fullorðið og veikt þá eigi ekki að hlusta á það þó að það vilji ekki að haft sé eftirlit með því. Konan hafði ekki viljað eiga samskipti við fjölskyldu sína um árabil. "Ég held að það hljóti allir að finna til ábyrgðar sinnar þegar fréttir berast af svona atburðum. Það hljóta allir að finna til óþæginda innra með sér. Það er ekki eðlilegur maður sem ekki tekur það nærri sér þegar svona gerist," segir séra Hjálmar. Hann segir að hversu vel sem hægt sé að útbúa velferðarkerfið þá taki það aldrei alfarið við hlutverki náungakærleikans. "Við eigum að gæta bræðra okkar." Lögregluyfirvöld treysta sér ekki til þess að leggja mat á hvort tilfelli sem þessi séu að aukast, jafnvel þótt stutt sé síðan sams konar atvik komst í hámæli. Í lok september var meðal annars greint frá máli Franz Stavarssonar en hann lá örendur í íbúð sinni í tvær vikur áður en hann fannst.
Innlent Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Sjá meira