Fékk sextán ára dóm fyrir hnífstunguárás 10. nóvember 2005 05:00 Sextán ár bak við lás og slá. Phu Tién Nguyén hlaut þungan dóm fyrir morðið á Phong Van Vu enda þótti dómnum að mestu sannað að um ásetning hefði verið að ræða af hans hálfu.
Héraðsdómur Reykjaness fann í gær Phu Tién Nguyén sekan um manndráp og hættulega líkamsárás að auki en hann var valdur að dauða Phong Van Vu í blokkaríbúð að Hlíðarhjalla í Kópavogi í maí síðastliðnum. Hlaut hann sextán ára fangelsisdóm og var dæmdur til að greiða rúmar tólf milljónir króna í skaðabætur auk alls sakarkostnaðar. Atvikið átti sér stað að kvöldi hvítasunnudags 15. maí síðastliðinn en þá réðst Nguyén að Van Vu í veislu eftir að hafa deilt um hríð hvor þeirra ætti að sýna hinum meiri virðingu vegna aldurs. Hófust átök milli mannanna þegar á leið sem endaði með því að Nguyén greip hníf og bar til Van Vu. Hlaut hann djúp stungusár í brjóstkassann báðum megin auk annarra áverka á handlegg og andliti. Bæði stungusárin í brjóstkassa mannsins voru lífshættuleg en stungan hægra megin dró hann hratt til dauða þar sem sárið gekk inn í lungnaslagæð. Var hann látinn þegar lögregla og sjúkralið kom að. Ákærði játaði strax verknað sinn fyrir lögreglu en bar við sjálfsvörn sem dómurinn féllst ekki á meðal annars vegna þess að morðvopnið hafði hann haft með sér í veisluna umrætt kvöld. Þótti allur framburður hans óljós og ruglingslegur að öðru leyti auk þess sem hann var mjög ölvaður þegar lögregla handtók hann síðar kvöldið örlagaríka. Hlaut Nguyén einnig dóm fyrir líkamsárás en hann lagði til annars manns sem reyndi að stöðva átökin með þeim afleiðingum að sá hlaut slæmt stungusár við mjöðm. Einn dómari við réttinn skilaði séráliti þar sem hann lýsir sig í meginatriðum sammála dómnum en telur þrettán ára fangelsisdóm nægan þar sem Nguyén hafi ekki gripið til hnífsins fyrr en átök höfðu staðið yfir um hríð milli mannanna tveggja. Auk þess hafi ákærði ekki haft orð á sér fyrir ofbeldishneigð né haft haturs- eða heiftarhug til fórnarlambsins.
Innlent Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Sjá meira