Símafyrirtækjum gert að hlera 4. apríl 2005 00:01
Síminn býr yfir búnaði til að hlera og taka upp símtöl. Samkvæmt frumvarpi um breytingar á fjarskiptalögum skulu öll fjarskiptafyrirtæki á Íslandi koma sér upp slíkum búnaði. Var frumvarpið rætt á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn. Fjarskiptafyrirtæki skulu samkvæmt frumvarpinu tryggja að yfirvöld geti hlerað símtöl og aflað sér annarra löglegra gagna í fjarskiptanetum sínum eða fjarskiptaþjónustu. Þá eigi fyrirtækin í þágu rannsókna opinberra mála og almannaöryggis að varðveita gögn um fjarskiptaumferð notenda í eitt ár. Í þeim upplýsingum verði hægt að sjá hvert notandinn hringir, hver hringir í hann, hvenær og hversu lengi hann talaði. Þetta eigi einnig við um nettengingar sem verði auðkenndar hverjum kaupanda þjónustunnar með IP-tölu. Þá eigi að vera hægt að sjá hver tengist internetinu, hvenær; magn gagnaflutnings hvort sem er til eða frá viðkomandi notanda og hvort hann hafi frumkvæði að tengingu eða ekki. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að framangreind breyting er gerð að ósk ríkislögreglustjóra. Mál komi oft til rannsóknar löngu eftir að refsiverð hegðun hafi átt sér stað og því sé nauðsynlegt að tryggja að sönnunargögn séu til staðar við upphaf rannsóknar. Þá kemur fram að lögreglan rannsaki ekki mál nema fyrir liggi rökstuddur grunur um refsiverðan verknað. Óheimilt verður að nota eða afhenda umræddar upplýsingar öðrum en lögreglu eða ákæruvaldi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Erlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Innlent Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Innlent „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Innlent Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Innlent Fleiri fréttir Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Grunsamlegir póstar í umferð: „Tafarlaus aðgerð nauðsynleg“ Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Sjá meira