Í loftinu í tíu tíma á dag 8. júlí 2005 00:01 "
Það er ótrúlegt að maður hafi staðið í þessu í öll þessi ár," segir Hallbjörn Hjartarson en þrettánda starfsár Útvarps Kántríbæjar er runnið upp. Nýlega hlaut Hallbjörn 300.000 króna styrk úr Menningarsjóði Höfðahrepps og hyggst hann verja hluta peninganna í viðgerð og uppsetningu sendis í Skagafirði. Þar hafa útsendingar legið niðri í tæpt ár en skagfirskir kántríunnendur og ferðamenn eiga sumsé von á að ná Hallbirni innan tíðar. Kúreki norðursins kom stöðinni á legg af miklum stórhug á sínum tíma og hefur staðið þar vaktina nánast sleitulaust síðan. Og það er setið lengi við í kántrýútvarpinu; vaktirnar standa í tíu tíma á virkum dögum að sumarlagi og einum tíma betur um helgar. Ögn hægist um á vetrum þegar Hallbjörn situr við hjóðnemann í átta tíma á dag. "Ég er orðinn þreyttur á þessu en það þýðir ekkert að hugsa um það. Fyrst maður var svona vitlaus að fara út í þetta á sínum tíma er ekki annað að gera en að sitja við þar til orkuna þrýtur." Hallbjörn segir að engum heilvitamanni hefði dottið í hug að stofna og starfrækja kántríútvarpsstöð í Húnavatnssýslu og viðurkennir um leið eigin vankannta. "Ég hef aldrei haft heilbrigða skynsemi og verð bara að taka því," segir hann og hlær. En fleiri mein en skynsemisskortur hrjá Hallbjörn. Hann veiktist af hastarlegri blóðeitrun fyrir ári og stríddi við hana fram í janúar. "Ég hef bara ekki jafnað mig almennilega síðan og náð mínum fyrri styrk." Fyrir vikið hefur tónlistarútgáfa setið á hakanum en kúrekinn ætlaði sér að gefa út plötu á árinu. Tvö ár eru liðin síðan Kötturinn Vúlli kom út og aðdáendur farið að lengja eftir nýjum lögum. "Ég veit ekki hvort mér tekst einhvern tíma að koma elleftu plötunni minni út. Ég er orðinn sjötugur og aðeins tíminn getur leitt í ljós hvað verður," segir Hallbjörn.
Innlent Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Sjá meira