Hópnauðgun á Tjörninni 12. júní 2005 00:01
Stokkandarsteggir ráðast mjög harkalega að kollum á Tjörninni í Reykjavík. Sjónarvottar standa á öndinni og líkja þessu við hópnauðgun sem óhugnanlegt sé að horfa upp á. Voðaverkin geta átt sér stað annars staðar en í veröld mannanna og eflaust kemur það einhverjum á óvart að halda þurfi fyrir augu barna á tjarnarbakkanum. Starfsmenn Iðnó hafa alloft orðið vitni af árásum steggja á kollur. Ein árásin átti sér stað fyrir skömmu. Brynhildur Magnea Sigurðardóttir, sem starfar á Iðnó, líkir henni við hópnauðgun og segir átta steggi hafa ráðist á eina kollu sem legið hafi í hnipri undir bekk alblóðug. Þegar fólk hafi reynt að nálgast hópinn hafi bæði steggirnir og kollan farið út á tjörn. Brynhildur segir að erfitt hafi verið að gera eitthvað eftir að þau voru komin þangað en reynt hafi verið að stía steggjunum frá kollunni með priki og látum. Það hafi gengið frekar illa. Brynhildur segir flestum hafa orðið illa við að sjá árásina. Hún segir móður hafa gripið fyrir augun á stráknum sínum og leitt hann í burtu vegna þess hve óhugnanlegt þetta var. Þá hafa íbúar í Þingholtunum orðið vitni af því þegar kollurnar reyna að flýja með steggina á eftir sér að íbúðarhúsunum og hafa kollur fundist illa særðar í görðum þar. Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum, segir þessa hegðun hjá öndunum óeðlilega því þessar endur pari sig yfirleitt fyrir lífstíð. Hún telur að þarna sé um að ræða baráttu steggjanna um ungu kollurnar sem hafa ekki enn parað sig. Hún segist halda að svona nokkuð sjáist ekki úti í náttúrunni og telur hún hugsanlegt að of mikill þéttleiki andanna á tjörninni riðli mynstri þeirra og að þessi hegðun sé afleiðing af því.
Fréttir Innlent Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Fleiri fréttir Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Sjá meira