Kotbýli kuklarans í Bjarnarfirði 12. júní 2005 00:01
Kotbýli kuklarans verður ímyndaður bústaður galdramanns á sautjándu öld. Galdrasafnið á Hólmavík reisir það í Bjarnarfirði þar sem gestir geta kynnt sér kukl og aðra óáran. Kotbýli kuklarans í Bjarnarfirði á Ströndum verður annar áfangi Galdrasafnsins á Hólmavík sem notið hefur mikilla vinsælda. Staðsetning kobýlisins er engin tilviljun því að í Bjarnarfirði bjó einn magnaðasti galdramaður landsins, Svanur á Svanshóli sem minnst er á í Njálu. Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri Galdrasafnsins, segir að kotbýlið eigi að verða ímyndaður bústaður galdarmanns á 17. öld og hann eigi að gefa innsýn inn í hugsunarhátt galdramannsins, hvernig hann lifði og tókst á við hversdagslegt amstur. Það verður án efa spennandi að líta inn í heim kuklarans í kotbýlinu. Sigurður segir að í Bjarnarfirði verði myrkrið meira en á Galdrasafninu og allt dularfyllra og enginn viti hvað sé á bak við næsta horn. Konur sem eiga leiðinlega eiginmenn er bent á að hægt er að grípa til aldagamalla aðferða við að bæta lund þeirra. Sigurður segir sögu af konu sem komið hafi í heimsókn í Galdrasafnið. Hún hafi verið á ferðalagi með manni sínum og þótt hann frekar leiðinlegur í ferðinni. Þegar þau hafi verið komin rétt út fyrir borgina hafi þau farið niður í fjöru í Kollafirði. Þar hafi hún látið hann standa grafkyrran og dregið í kringum hann galdrastaf í sandinn. Galdrastafinn hafi hún svo sýnt Sigurði þegar hún kom í Galdrasafnið. Það hafi verið galdrastafurinn ægishjálmur en hún hafi ekki haft hugmynd um það en sagt að maðurinn sinn hefði leikið á als oddi alla leiðina norður eftir þennan verknað. Galdrasafnið á Hólmavík var opnað fyrir fimm árum og síðustu ár hafa á milli sex og sjö þúsund gestir komið í safnið á hverju ári. Í safninu eru fjölmargir munir sem tengdir eru göldrum og kukli fyrri alda. Aðspurður hvort fólk verði skelkað þegar það heimsæki safnið segir Sigurður að allur gangur sé á því. Yfirleitt sé fólk rólegt en það hafi komið fyrir að fólk hafi hlaupið út í ofboði. Það sé þó aðallega þegar hann taki það í kennslustund um það hvernig eigi að umgangast drauga og þess háttar. Það sé þó yngra fólkið sem verði oftar hrætt. Kotbýli kuklarans er hlaðið úr torfi, grjóti og rekavið samkvæmt aldagömlum aðferðum og verður opnað 23. júlí.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira