Innlent

Skuldir lækka um milljarð

Styrk fjármálastjórn. Borgarstjóri er afar ánægður með þá fjárhagsáætlun fyrir næsta ár sem lögð verður fyrir borgarstjórn. Segir hún hana sýna að staða borgarinnar sé sterk ólíkt því sem margir vilji vera láta.
Styrk fjármálastjórn. Borgarstjóri er afar ánægður með þá fjárhagsáætlun fyrir næsta ár sem lögð verður fyrir borgarstjórn. Segir hún hana sýna að staða borgarinnar sé sterk ólíkt því sem margir vilji vera láta.

"Þetta frumvarp að fjárhagsáætlun ber með sér að borgarbúar eru að uppskera árangur traustrar fjármálastjórnar í borginni undanfarin ár," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Borgarstjóri kynnti í gær fjárhagsáætlun sína fyrir næsta ár. Þar kemur fram að hreinar skuldir borgarinnar eiga að lækka um rúman milljarð króna og gert er ráð fyrir 1,4 milljarða króna rekstrarafgangi.

Heildartekjur borgarsjóðs eru áætlaðar rúmar 45 milljarðar króna sem er tæpum tíu prósentum meira en gert er ráð fyrir á yfirstandandi ári. Á móti hækka rekstrargjöld úr tæpum 39 milljörðum í tæpa 42 milljarða en áætlanir gera ráð fyrir að rekstrarafgangur verði nálægt 1,4 milljörðum króna, sem er öllu hærra en þær tæpu fimm hundruð milljónir sem útkomuspá þessa árs gerir ráð fyrir.

Bókfærðar heildareignir munu lækka á tímabilinu um fimm milljarða króna, fyrst og fremst sökum sameiningar Fráveitu og Orkuveitu Reykjavíkur.

Heildarskuldir borgarsjóðs munu lækka um rúma átta milljarða króna miðað við að útkomuspá þessa árs og áætlanir þess næsta náist. Hefur heildarskuldastaða borgarinnar því ekki verið betri síðustu fjögur ár.

Sem fyrr vega menntamál þyngst í útgjöldum sjóðsins í áætluninni. Alls 46 prósent allra útgjalda eru eyrnamerkt til menntastofnana af einu eða öðru tagi. Velferðarmál taka sextán prósent en önnur mál mun minna.

Steinunn Valdís segir að skattar og gjöld á hvern borgarbúa séu með því lægsta sem gerist í þéttbýli í borginni og að borgarsjóður muni njóta þeirra þenslu sem fyrir­sjáanleg er á næsta ári í formi hækkandi útsvari og væntanlega lægri útgjöldum vegna fjárhagsaðstoðar af ýmsu tagi.

Borgarstjóri segir að fjárhagsáætlunin sýni að staða borgarsjóðs sé sterk þrátt fyrir tal margra um að svo sé ekki og að miðað við þá þjónustu og verkefni sem borgin innti og ætlaði sér að inna af hendi fyrir íbúa sína sé um góða og heilbrigða áætlun að ræða.

"Auðvitað erum við með útsvarsprósentuna í toppi en það er hluti af okkar áætlun. Við viljum fremur fá eins mikið og hægt er og nota það fé í samfélagslega sjóði sem öllum borgarbúum nýtast. Þess vegna getum við haldið þjónustu ódýrri, boðið gjaldfrjálsan leikskóla og lækkað fasteignagjöld eins og hugmyndir okkar standa til."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×