Ræningi þegir um félaga og ránsfeng 15. nóvember 2005 05:00 Lögregla á vettvangi. Mikill viðbúnaður var vegna bankaránsins í Hátúni. Lögregla var komin á vettvang örfáum mínútum eftir ránið.
Hilmar Ragnarsson, 43 ára gamall Reykvíkingur, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hilmar og óþekktur félagi hans réðust hettuklæddir inn í útibú Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í Hátúni 2 um klukkan 11:20 föstudaginn 9. janúar í fyrra. Þeir voru vopnaðir rörbútum, ógnuðu viðskiptavini bankans og starfsfólki og komust undan með 610 þúsund krónur sem aldrei hafa fundist. "Ákærði á sér engar málsbætur," segir í dómnum og er tekið fram að ljóst sé að ránið hafi verið fyrir fram vel skipulagt, bæði með það í huga að komast yfir mikla peninga og tryggja undankomu ræningjanna. "Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði framdi ránið á ófyrirleitinn hátt í félagi við annan mann og voru þeir báðir hettuklæddir." Fram kemur í dómnum að mennirnir hafi látið mjög dólgslega þegar þeir réðust til inngöngu þar sem þeir öskrandi slógu rörbútunum í innanstokksmuni. Hilmar braut svo glerið í gjaldkerastúku og hótaði að drepa starfsstúlkuna ef hún afhenti ekki peninga. Á meðan stökk félaginn upp á afgreiðsluborð fyrir framan aðra stúku og hrifsaði til sín peninga. Ránið sjálft tók ekki nema örfáar mínútur. Það hófst klukkan 11:19 og voru mennirnir á bak og burt þegar lögregla kom klukkan 11:23. Þjónustufulltrúi í bankanum hafði ýtt á neyðarhnapp og úti fyrir hringdi vegfarandi á lögreglu. Til ræningjanna sást þar sem annar flúði á hjóli en hinn hlaupandi, en fjöldi vitna varð var við ferðir þeirra. Hilmar var ekki yfirheyrður vegna málsins fyrr en um einum og hálfum mánuði eftir ránið og neitaði þá staðfastlega nokkurri aðild en kvaðst á þessum tíma hafa verið í mikilli fíkniefnaneyslu. Lögregla fann hins vegar lífsýni úr honum í nælonsokki sem hann notaði til að hylja andlit sitt við ránið. Sokkurinn fannst við gatnamót Laugavegar og Ásholts ásamt öðru dóti sem ræningjarnir köstuðu frá sér á flóttanum. Einnig fundust lífsýni úr Hilmari í gúmmíhanska og húfu sem fannst á svipuðum slóðum. Auk fangelsisdómsins var Hilmari gert að greiða viðskiptavini bankans sem þeir félagar hröktu út með ofbeldi 300 þúsund krónur í skaðabætur, bankanum rúmlega 709 þúsund krónur og rúmar 745 þúsund krónur í sakarkostnað.
Innlent Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira